Stöðupróf í dönsku og ensku

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum  býður upp á stöðupróf fyrir nemendur sína í þeim tungumálum sem kennd eru við skólann. Uppfylla þarf a.m.k. eitt af eftirfarandi skilyrðum til þess að geta sótt um að taka stöðuprófin: að viðkomandi sé tvítyngdur, hafi verið búsettur erlendis í ákveðinn tíma eða verið skiptinemi erlendis. Ef nægjanleg gögn liggja fyrir er mögulegt að nemandinn sé metinn beint, þó aldrei meira en 15 einingar.

Í ensku eru metnar að hámarki 10 einingar á öðru þrepi úr stöðuprófum.

  • Sækja þarf um stöðupróf  á skrifstofu FÍV á netfangið skrifstofa@fiv.is

  • Próftaka fer fram fimmtudaginn 22. september 2024 kl. 8:00-10:00.

  • Greiðsla verður að hafa borist skólanum í seinasta lagi miðvikudaginn 21. september kl. 12.00, sjá gjaldskrá FÍV

  • Ef ekki er greitt fyrir prófið á réttum tíma er nemandi sjálfkrafa tekinn af lista yfir þá sem skráðir eru í stöðupróf.