Hægt er að stunda nám í flestum áföngum sem kenndir eru við skólann í fjarnámi. Kennslan fer fram í kennsluumhverfi Innu þar sem hver áffangi er með sitt svæði, eins og kennslustofa í netheimum þar sem nemandi er í tengslum við kennara sinn og nemendur.
Í FÍV er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti og fjölbreytt námsmat. Almennt eru ekki stór lokapróf en nemendur sem mæta að öllu jöfnu ekki í staðbundin hlutapróf og verkefni þurfa að ljúka staðbundnu lokaprófi. Lokapróf eru í lok hverrar annar. Lokapróf á haustönn eru í desember, lokapróf á vorönn eru í maí. Hægt er að taka lokapróf í heimabyggð nemenda út um allan heim.
Allir áfangar skólans eru í kennslukerfi Innu. Kennslukerfið er nokkurs konar skóli í netheimum, þar sem hver áfangi á sér samastað. Nemendur komast þar í samband við kennara áfangans og samnemendur. Þar eru vistuð ýmis námsgögn, svo sem textar, hljóðskrár, myndbandsskeið, námsáætlanir, gagnvirk verkefni og fleira.
Í sérhverjum áfanga er að finna:
- Nákvæm námsáætlun sem er í samræmi við áfangalýsingu á netinu.
- Vikuleg áætlun um yfirferð námsefnis.
- Nákvæm lýsing á verkefnum og skilatíma þeirra.
- Samsetning námsmats.
Í Innu setur kennarinn inn það efni sem nemandinn þarf til námsins, svo sem:
- Námsáætlun
- Vikuáætlun.
- Námsefni- er fjölbreytt, bækur, tímarit, rafræn námsgögn á neti og vefsíður.
- Verkefni.
- Æfingar og próf.
Nemendur þurfa að skipuleggja tíma til námsins í samræmi við námsáætlun, nemendur geta fengið leiðbeiningar við námstækni.
Í kennslukerfinu er hægt að senda póst til kennara og samnemenda, taka þátt í umræðum og spjalli. Kennarar svara öllum fyrirspurnum innan tveggja virkra sólarhringa.