Á náttúruvísindalínu er lögð áhersla á gott almennt nám og þó einkum góða þekkingu á sviði stærðfræði, náttúru- og raunvísinda.
Brautin er góður undirbúningur undir frekara nám í náttúru- og raunvísindum, tæknigreinum og heilbrigðisvísindum.
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að:
- gera sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni
- taka þátt í lýðræðislegri samræðu og samstarfi
- efla eigin sjálfsmynd og nýta styrkleika sína
- beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
- nálgast verkefni á faglegan og sjálfstæðan hátt
- leita fullnægjandi raka fyrir skoðunum sínum og annarra
- nýta sér góða almenna þekkingu á sviði stærðfræði, náttúru- og raunvísinda
- beita vísindalegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna, öflun upplýsinga, mælingar, mat, úrvinnslu og túlkun
- geta fjallað um og tekið þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags
- geta nýtt sér kunnáttu sína í náttúru- og raunvísindum í mögulegri framtíðarþróun
- takast á við frekara nám, einkum í stærðfræði, náttúru- og raunvísindum, tæknigreinum og heilbrigðisvísindum.
Nánar um áfanga á námsbrautinni.
Hægt er að sækja um með því að smella hér.