Ferill mála vegna brota á skólasóknarreglum
Ferlið sem fer í gang þegar fjarvistir nemanda stefna í óefni hefst á munnlegri áminningu frá starfsmanni skólans, tiltal skólameistara/aðstoðarskólameistaraog síðan skriflegri áminningu skólameistara ef sú fyrri ber ekki árangur. Láti nemandi sér ekki segjast og bæti mætingu er næsta skref brottrekstur úr skóla í lengri eða skemmri tíma. Í fyrsta skipti sem nemanda er vísað úr skóla er endurinnritun möguleg. Haldi brot nemenda áfram eftir endurinnritun er málinu vísað til skólameistara sem metur hvort einhverjar ástæður réttlæti áframhaldandi skólavist nemandans. Forráðamenn ólögráða nemenda fá afrit af bréfasendingum og geta þeir eða nemandinn sjálfur komið andmælum á framfæri.
Ferill mála vegna brota á prófa- og verkefnareglum
Ef nemandi er staðinn að því að nota óleyfileg gögn, veita eða þiggja hjálp frá öðrum nemanda, telst hann fallinn í viðkomandi prófi eða verkefni. Upplýsingar um málið eru skráðar í athugasemdakerfi Innu. Ítrekuð brot geta leitt til brottvísunar úr skóla. Það ferli sem fer í gang þegar um slíkt er að ræða felst í því að formleg tilkynning um málið er send til viðkomandi nemanda og einnig til forráðamanna ólögráða nemenda.
Ferill mála vegna brota á skólareglum
Viðbrögð við broti á skólareglum geta verið eftirfarandi, eftir alvarleika brotsins: Munnleg ábending frá starfsmanni skólans, tiltal skólameistara, skrifleg áminning skólameistara, brottvikning úr áfanga, brottvikning úr skóla um lengri eða skemmri tíma. Við ítrekuð brot kemur til skriflegrar áminningar til nemandans og forráðamanns hans ef um ólögráða nemanda er að ræða. Nemandinn eða forráðamenn hans hafa andmælarétt telji þeir á sér brotið. Láti nemandi sér ekki segjast og haldi uppteknum hætti varðandi brot á reglum skólans getur komið til brottvikningar hans ef skólaráð tekur þá ákvörðun eftir umfjöllun um málið. Brot á almennum hegningarlögum verða kærð til lögreglu.
Ferill mála vegna ágreinings um námsmat
Nemendur eiga rétt á að fá útskýringar á mati sem liggur að baki lokaeinkunn í áfanga. Í lok hverrar annar er sýningardagur námsmats þar sem nemendur geta óskað eftir nánari útskýringum á lokamati áfanga. Ef nemandi unir ekki þeim niðurstöðum getur hann snúið sér til skólameistara innan fimm daga og óskað eftir endurskoðun óvilhalls skoðunarmanns. Slík beiðni þarf að vera skrifleg og í henni þarf að koma fram rökstuðningur fyrir beiðninni. Skólameistari hefur þá milligöngu um að útvega skoðunarmann og er úrskurður hans endanlegur og verður ekki skotið til æðra stjórnvalds sbr. grein 11.4 í Aðalnámskrá framhaldsskóla 2. útg. 2012.
Leitast skal við að leysa ágreiningsmál á vettvangi skólans. Uni nemandi eða forráðamenn hans ekki úrskurði í deilumáli má vísa málinu til mennta- og barnamálaráðuneytisins. Lögð er áhersla á að afgreiða brot á skólareglum með skjótum hætti en jafnframt er áhersla á öryggi og vandvirkni við úrlausn og afgreiðslu.