Ný reglugerð um vinnustaðanám tók gildi 1. ágúst 2021. Vinnustaðanám er hluti af námi þeirra nemenda sem hófu nám á haustönn 2021. Frá þeim tíma sér Framhaldsskólinn um gerð og staðfestingu vinnustaðanámssamninga og hefur umsjón með sínum nemendum meðan á vinnustaðnáminu stendur.
Hæfnikröfur sem nemandi uppfyllir ræður tímalengd vinnustaðanáms. Tilsjónarmaður á vinnustað metur hæfni nemanda samkvæmt hæfnikröfum starfsins og hæfniþáttum í rafrænni ferilbók. Umsjónaraðili skóla staðfestir hæfnina í lokin. Vinnustaðanám getur þó aldrei orðið lengra en uppgefin tímamörk í námsbrautalýsingum viðkomandi greinar. Vinnustaðanámi telst lokið þegar hæfni nemanda er náð samkvæmt ferilbók.
Nemendur sækja sitt vinnustaðnám undir handleiðslu meistara á vinnustað. Nemendur sækja um vinnustaðanám hjá meisturum/fyrirtækjum/stofnunum sem mega taka nema. Þannig getur neminn sjálfur haft áhrif á það hvar hann tekur vinnustaðanámið.
Til að skólinn geti stofnað rafræna ferilbók og nemasamning þarf að fylla út þetta Skráning í ferilbók.
Þegar skólinn hefur stofnað ferilbókina fá neminn og meistarinn sms og/eða tölvupóst þar sem þeir eru beðnir að undirrita samninginn rafrænt.
Nánari upplýsingar um rafræna ferilbók má finna á heimasíðu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu