VÉLV3VA04 - Viðhald véla - vélvirkjun
Lýsing
Viðhald véla – vélvirkjun
Einingafjöldi : 4
Þrep : 3
Nemendur öðlast þekkingu á undirstöðuatriðum í viðhaldi og viðgerð á brunahreyflum skipa og algengum vél- og drifbúnaði sem þeim tengist. Nemendur taka í sundur, skoða og setja saman vélar og vélbúnað.Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautarlýsingunni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- uppbyggingu véla og samsetningu vélahluta.
- aðferðum við að stilla saman vélar og vélbúnað.
- hlutverki og uppbyggingu forþjöppu og gangráðs.
- áhrifum hitabreytinga á þenslu vélahluta og hvernig brugðist er við þeim við hönnun vélbúnaðar.
- aðferðum og efnum sem notuð eru til að steypa undir vélar og tæki.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- meta ástand vélbúnaðar samkvæmt þjónustu- og viðhaldslýsingum framleiðenda.
- mæla og skoða búnað með tilliti til slits og leggja mat á niðurstöður.
- taka upp strokk og bullu meðalhraðgengrar dísilvélar og meta slit.
- sveigjumæla sveifarás og leggja mat á slit í sveifar- og höfuðlegum dísilvéla.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna að upptektum á vélum og vélbúnaði.
- mæla upp skipsskrúfu og leggja mat á niðurstöður.
- leggja mat á dælur og dælikerfi sem þjónusta aflvélar með tilliti til viðhalds og upptektar.
- sinna umhirðu tannhjóla og vökvagíra.
- rétta af (lína saman) vél og drifbúnað.
- meta ástand brunahreyfla út frá niðurstöðum athugana, svo sem þjöppumælingu og mælingu á smurolíuþrýstingi.