VÉLF2VB05 - Vélfræði 2

Lýsing

Vélfræði 2

Einingafjöldi : 5

Þrep : 2

Fræðileg umfjöllun um orku og orkunýtingu véla. Nemendur kynnast því hvernig orkan í eldsneytinu breytist m.a. í hreyfiorku og varmaorku og hvernig hún nýtist til að knýja skipið áfram.Þeir læra um grunnþætti gufukatla og eimframleiðslu og þjálfast í að útleiða formúlur sem koma fyrir í námsefninu. Þeir fá ennfremur þjálfun í að útskýra gildi breyta í formúlum og þjálfast í að beita þeim á viðeigandi hátt við lausn verkefna.Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautarlýsingunni.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Sankey línuritinu, hlutverki þess og notkun.
  • umbreytingu á orku við notkun brunavéla og varmajöfnuði.
  • nýtingu orku í brunavélum og nýtingu orku við að knýja skip áfram.
  • sveigju skipsskrúfu, skrikun hennar, skrúfulínuriti, afkastalínuriti.
  • neðra og efra varmagildi olíu og aðferðum við mælingu varmagildis.
  • fullkomnum bruna og orsökum ófullkomins bruna.
  • eldsneytisnotkun bulluvéla og orkudreifingu.
  • fræðilegri loftþörf, loftaukatölu og raunverulegri loftþörf brunavéla og katla.
  • notkun eims við aflfærslu, notkun á eimtöflum, myndunarvarma og nýtni katla.
  • mismun á vatnsrörakatli og reykrörakatli.
  • aflþörf dælukerfa (dælna).
  • kennilínu miðflóttaaflsdælu.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • gera grein fyrir fjölbreyttum vélfræðilegum viðfangsefnum með notkun stærðfræði.
  • nota mismunandi vélfræðilegar mælieiningar við útreikninga.
  • reikna út aflþörf, orkunýtingu og varmajöfnuð véla.
  • gera grein fyrir notkun eims við aflyfirfærslu.
  • útskýra hugtök eins og myndunarvarma og nýtni katla.
  • nota eimtöflur og varmaflæðilínurit.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • útleiða formúlur sem fyrir koma í námsefninu, útskýra gildi breytanna í formúlunni og beita þeim við lausn verkefna.
  • gera tillögur varðandi val á vélum, kötlum og ýmsum vélbúnaði skipa.
  • skýra neðra og efra varmagildi olíu og aðferðir við mælingu varmagildis.
  • leggja mat á gögn varðandi bruna eldsneytis, svo sem fullkominn bruna og ófullkominn bruna.
  • skýra eldsneytisnotkun bulluvéla og orkudreifingu.
  • nýta kennilínur og aflþörf dælna við val á búnaði.