TSVÉ2IT02 - Tölvustýrðar iðnvélar 1

Lýsing

Tölvustýrðar iðnvélar 1

Einingafjöldi : 2

Þrep : 2

Nemendur öðlast grunnþekkingu á virkni og notkun tölvustýrðra iðnaðarvéla. Þeir kynnast öllum öryggisatriðum í umgengni við slíkar vélar. Nemendur geta smíðað grip samkvæmt teikningu í tölvustýrðri iðnaðarvél (rennibekk, fræsivél, skurðarvél, suðuþjark eða beygjuvél). 

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hnitakerfinu, kartesían og pólar.
  • gangi tölvustýrðra véla.
  • hegðun x-y-z ása.
  • mælinga- og aflestrarkerfi sem notuð eru við tölvustýrðar vélar.
  • muninum á ISO- og díalóg-forritum.
  • muninum á G- og M-skipunum.
  • mismunandi forritum fyrir ýmsar gerðir tölvustýrðra véla (t.d. blikksmíðavélar, fræsivélar, skurðarvélar).
  • flutningi og geymslu gagna.
  • öryggismálum og umgengni við tölvustýrðar vélar.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • forrita einfalt ISO-forrit.
  • velja og setja upp verkfæri, skurðhraða, snúningshraða og færslur.
  • velja skurðhraða, snúningshraða og færslur.
  • stilla núllpunkt fyrir tölvustýrðar vélar.
  • leiðrétta mælingar.
  • velja uppstillingar.
  • sækja viðeigandi forrit, t.d. á heimasíðu framleiðanda og setja upp í tölvu.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • smíða einföld æfingastykki í tölvustýrðri iðnvél sem metið er með verkefnavinnu og skýrslum.
  • forrita einfalt ISO-forrit sem metið er með prófum og verkefnum.