TNTÆ2DR04 - Tölvu- og nettækni - nettækni

Lýsing

Tölvu- og nettækni – nettækni

Einingafjöldi : 4

Þrep : 2

Í áfanganum kynnast nemendur tölvunetkerfum, mismunandi gerð þeirra, margvíslegri uppbyggingu og þeim búnaði sem þau samanstanda af. Nemendur kynnast virkni tölvuneta með því að tileinka sér netkerfistaðlana OSI og TCP/IP. Höfuðáhersla áfangans er að kenna nemendum grunninn í vélbúnaði tölvunetkerfa, stillingar á búnaði og tengingu milli íhluta þeirra. Nemendur læra einnig að hanna meðalstór netkerfi og skipta stórum kerfum upp í minni. 

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • íhlutum tölvunetkerfa, tilgangi þeirra og virkni.
  • OSI og TCP/IP líkönum.
  • IP vistföngum.
  • hugtökum og skammstöfunum sem notuð eru í tölvunetkerfum.
  • nethögun (topology) tölvulagna.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • þekkja notkunarsvið mismunandi tölvustrengja.
  • meta hvaða nethögun hentar best við hvert tilfelli.
  • útbúa tölvustrengi og gæðamæla þá.
  • rekja bilanir í netsamböndum.
  • setja upp og tengja lítið net með einum netþjóni (ekki peer to peer) og setja upp samband yfir router út á internetið.
  • nýta sér Network Analyzer við bilanagreiningu á netum.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hanna með vistföngum meðalstór tölvunetkerfi.
  • velja réttan búnað við uppsetningu á tölvunetkerfi.
  • setja upp og stilla meðalstórt tölvunetkerfi.
  • stilla beina (routers) með grunnstillingum.
  • finna bilanir í tölvunetkerfi.
  • hafa yfir að ráða nægum orðaforða á efninu til þess að geta rætt um kerfin við aðra tæknimenn.
  • nota áunna tækniensku sér til framdráttar og frekara náms í nýjustu tækni á þessum sviðum.