TEIK3PL04 - Teikningar og verklýsingar III - Pípulagnir
Lýsing
Teikningar og verkýsingar III - Pípulagnir
Einingafjöldi : 4
Þrep : 3
Í áfanganum öðlast nemendur þekkingu og færni í að lesa og teikna uppdrætti af sérhæfðum lagnakerfum eins og snjóbræðslu-, gas- og vatnsúðakerfum, kæliröftum m.m. Jafnframt er farið yfir teiknitákn og teiknireglur fyrir stýringar og tæknibúnað lagnakerfa og komið inn á reyndaruppdrætti m.a. vegna endurlagna og viðgerða. Lögð er áhersla á gerð notkunarleiðbeininga fyrir lagnakerfi og komið inn á gæðamál, staðla og verklýsingar. Nemendur læra um notkun tölvutækni við gerð og miðlun lagnauppdrátta og annarra hönnunargagna. Kennslan byggist aðallega á verkefnavinnu nemenda og lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- sérhæfðum lagnakerfum og tæknibúnaði lagnakerfa.
- ákvæðum byggingareglugerðar sem eiga við um sérhæfð lagnakerfi.
- reglum Brunamálastofnunar og Vinnueftirlitsins um gaslagnir.
- stöðlum um mannvirkja- og tækniteikningar sem tengjast lagnabúnaði.
- tæknilegum útfærslum einstakra sérhæfðra lagnakerfa.
- uppdráttum og teiknitáknum fyrir sérhæfð lagnakerfi og tæknibúnað.
- fagheitum og efnisnotkun í lagnateikningum fyrir sérhæfð lagnakerfi.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita reglum um endurlagnir og viðgerðir á lagnakerfum.
- nota Rb-blöð í upplýsingaleit og við gerð teikninga.
- lesa og vinna með teikningar af sérhæfðum lagnakerfum, stýringum og tæknibúnaði.
- lesa og skilja merkingar á teikningum og meðfylgjandi verklýsingar.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nota algengustu teikniforrit á tölvu og beita þeim við gerð og miðlun lagnauppdrátta og annarra hönnunargagna.
- gera notendaleiðbeiningar fyrir lagnakerfi út frá uppdrætti og verklýsingu.
- gera efnisáætlun fyrir sérhæfð lagnakerfi og tækjaklefa.