STÝR1VA04 - Stýritækni loft- og vökvastýringa

Lýsing

Stýritækni loft- og vökvastýringa

Einingafjöldi : 4

Þrep : 1

Í áfanganum öðlast nemendur grunnþekkingu á loft-, og vökvastýrðum kerfum, meðhöndlun loftsins (raka, síun, hitastigi) og uppbyggingu vökva, helstu þáttum þeirra, hlutverki og notkunarsviði. Þeir þjálfast í stillingu þrýstings, notkun og stillingu tímaliða og hraða. Fjallað er um helstu atriði í uppbyggingu þrepastýrikerfa og raktar teikningar af stýrikerfum fyrir brunavélar. Nemendur fá undirstöðuþekkingu og skilning á hlutverki og notkun stýritækninnar, þannig að þeir verði færir um að þjónusta loft- og vökvastýrð kerfi, setja upp kerfi eftir teikningum og framkvæma einfaldar viðgerðir. Gerðar eru verklegar æfingar í uppbyggingu og notkun einfaldra loft- og vökvastýrikerfa. Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautarlýsingunni.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • táknmyndum sem notaðar eru í teikningum samkvæmt ISO-staðli.
  • samhengi flatar, þrýstings og krafts.
  • loftþjöppum og vökvadælum, tjökkum, lokum og öðrum búnaði tengdum loft- og vökvakerfum.
  • öryggisþáttum við meðhöndlun á lofti og vökva undir þrýstingi.
  • hraðastillingum strokka og notkun tímaliða með stillanlegum rof- og tengitíma.
  • áhvílandi stýrimerkjum.
  • síum og hreinsibúnaði og helstu aðferðum við hreinsun á lögnum.
  • helstu tegundum lagna, rörum, slöngum, festingum og tengjum.
  • vökvum sem notaðir eru á vökvakerfi og eðliseiginleikum þeirra (seigju, seigjutölu) og umhverfisáhrifum vökva, förgun og endurvinnslu.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja upp og annast tengingar einfaldra stýrikerfa.
  • útskýra virkni einfaldra stýrikerfa út frá teikningum.
  • útskýra tengimyndir, starfsrit og stöðurit.
  • lesa kerfisteikningar og nota handbækur.
  • meta hvort uppgefnar stærðir á lögnum séu réttar.
  • meta stærð vökvageymis og lagna að honum og frá.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • stjórna loft- og þrýstivökvakerfum á öruggan hátt.
  • lofttæma lokað vökvakerfi.
  • finna og lagfæra bilanir í loft- og þrýstivökvakerfum.
  • gera tengimyndir af hálf- og alsjálfvirkum raðferlum strokka.
  • meta orkutap í kerfum.
  • gera starfsrit samkvæmt tengimyndum.
  • nota handbækur.