STJÓ3ST05 - Stjórnmálafræði

Lýsing

Stjórnmálafræði

Einingafjöldi : 5

Þrep : 3

Farið er yfir helstu einkenni íslenskra stjórnmálaflokka og stjórnkerfis í samhengi við byggða- og samfélagsþróun eftir 1900 og fjallað um hugmyndafræði flokkanna í alþjóðlegu samhengi. Íslenska valdkerfið skoðað, þrískipting ríkisvaldsins, stjórnarskráin og samspil helstu valdþátta. Markmiðið er að nemendur þekki í grófum dráttum sögu og einkenni íslenska stjórnkerfisins og flokkanna, skilji hvernig valdaþættir spila saman og viti hvar helstu átakalínur liggja. Efnið á að auðvelda nemendum að leggja gagnrýnið mat á álitaefni stjórnmálanna og taka þátt í lýðræðislegri umræðu á upplýstan hátt. Í og utan kennslustunda verða gerð fjölmörg verkefni þar sem oft reynir á eigin heimildaöflun og gagnrýnið mat á heimildum. Áhersla er lögð á að fjalla um málefni sem efst eru á baugi í stjórnmálum, efnahagsmálum og félagsmálum og tengja við málefni sem nemendur hafa sérstakan áhuga á. 

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu viðfangsefnum, aðferðum og hugtökum stjórnmálafræðinnar
  • hugmyndafræði, stefnu og viðhorfum í stjórnmálum
  • þrískiptingu ríkisvaldsins og helstu stoðum íslenska stjórnkerfisins
  • þróun íslenska valdakerfisins, stjórnmálaflokka og helstu hagsmunasamtaka

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • afla sér traustra upplýsinga um stjórnmálaleg efni
  • greina upplýsingarnar og setja í fræðilegt samhengi
  • beita hugtökum stjórnmálafræðinnar á dagleg pólitísk úrlausnarefni
  • tengja sögu íslensku flokkanna við helstu hugmyndakerfi í stjórnmálum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja pólitískt samhengi í samfélaginu
  • þekkja birtingarform einstakra stjórnmálastefna í samfélagslegum ákvörðunum
  • rökræða pólitísk og samfélagsleg álitaefni á málefnalegan og gagnrýninn hátt
  • ræða og mynda sér skoðanir byggðar á rökum úr stjórnmálafræði