STAR1ST05 - Starfsferill

Lýsing

Starfsferill

Einingafjöldi : 5

Þrep : 1

Starfsbrautaráfangi

Í áfanganum kynnast nemendur helstu atvinnufyrirtækjum í nærsamfélaginu og þeim möguleikum sem þau bjóða upp á með tilliti til atvinnuþátttöku. Nemendur fá kynningu á helstu reglum (skrifuðum sem óskrifuðum) sem gilda á vinnustöðum og farið verður yfir almenn samskipti á vinnustað. Nemendur fá fræðslu um réttindi og skyldur starfsmanna á almennum vinnumarkaði og farið verður yfir almenna öryggis- og hollustuhætti á vinnustöðum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Atvinnutækifærum og fyrirtækjum í nærsamfélaginu
  • Þeim atriðum sem taka ber tillit til við starfsval
  • Tilgangi starfa og mikilvægi þeirra í tengslum við önnur störf
  • Eigin styrkleikum og mikilvægi góðra samskipta
  • Reglum, öryggi og hollustuháttum á almennum vinnustöðum
  • Réttindum og skyldum launþega

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Flokka atvinnufyrirtæki eftir eðli þeirra
  • Meta eigin kunnáttu og reynslu með tilliti til starfsvals
  • Bera ábyrgð á sjálfum sér og eigin gjörðum, t.d. að mæta á réttum tíma til vinnu
  • Taka þátt í samræðum, bera virðingu fyrir skoðunum annarra og sýna umburðarlyndi
  • Þekkja réttindi sín og skyldur sem launþegi
  • Meta hættur í vinnuumhverfi

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Taka þátt í atvinnulífinu
  • Velja sér starfsvettvang
  • Vera ábyrgur starfsmaður
  • Gera sér grein fyrir samhengi milli atvinnugreina
  • Vera hæfur til samvinnu
  • Nýta sér hlífðarbúnað og hjálpartæki á vinnustað og forðast hættur