STAR1SA05 - Starfsnám á vinnustað 1

Lýsing

Starfsnám á vinnustað 1

Einingafjöldi : 5

Þrep : 1

Starfsbrautaráfangi

Starfsnám gefur nemendum tækifæri til þess að kynna sér ýmis störf og mismunandi vinnustaði. Námið felur í sér að nemendur þjálfist í að beita mismunandi aðferðum og verklagi. Starfsnám fer fram í skóla og á vinnustað. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður skýrari.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Fjölbreyttum vinnustöðum
  • Fjölbreyttum starfsheitum
  • Mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
  • Mæta til vinnu á réttum tíma
  • Fylgja fyrirmælum
  • Fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
  • Fylgja samskiptareglum á vinnustað
  • Fylgja öryggisreglum á vinnustað

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

Taka þátt í atvinnulífinu

Hafa yfirsýn yfir mismunandi störf og starfsvettvang

Þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem felst í þeim

Tilheyra starfsmannahópi