STÆR1PR03 - Prósentureikningur
Lýsing
Prósentureikningur
Einingafjöldi : 3
Þrep : 1
Starfsbrautaráfangi
Áhersla verður á prósentureikning með fjölbreyttri nálgun. Það verður m.a. gert með mismunandi verkefnavinnu, vettvangsferðum í verslanir, veraldarvefurinn verður notaður ásamt tilboðsbæklingum og spilum. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Grunnatriðum í prósentureikningi
- Tölum og reikniaðgerðum
- Forgangsröðun aðgerða
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Beita prósentureikningi í einföldum dæmum
- Temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
- Leysa úr stærðfræðilegum prósentuupplýsingum
- Tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Setja fram tölulegar upplýsingar
- Skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
- Reikna afslátt á vörum og/eða þjónustu
- Beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
- Lesa í umhverfi sitt, t.d. í auglýsingabæklinga þar sem vörur eru auglýstar með afslætti
- Reikna út afslætti og tilboð