STÆR1DL03 - Stærðfræði daglegs lífs

Lýsing

Stærðfræði daglegs lífs

Einingafjöldi : 3

Þrep : 1

Starfsbrautaráfangi

Áhersla verður á peninga og gildi þeirra. Unnin verða mismunandi verkefni, farið í vettvangsferðir í verslanir, veraldarvefurinn nýttur og notaðir verða tilboðsbæklingar og spil. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Algengum tímahugtökum
  • Vikudögum
  • Mánuðum
  • Dagsetningum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lesa í og/eða nýta sér dagatal
  • Lesa á klukku
  • Breyta dagsetningu úr rituðu máli yfir í tölustafi

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Nýta sér tímahugtök í daglegu lífi
  • Átta sig á árstíðum og þeim mánuðum sem tilheyra hverri árstíð
  • Nýta sér viðeigandi stuðningstæki þegar það á við, s.s. dagatal
  • Vera stundvís