SPÆN2MF05 - Spænska 4. Framhaldsáfangi

Lýsing

Spænska 4 : framhaldsáfangi

Einingafjöldi : 5

Þrep : 2

Unnið er sem fyrr með lesskilning, tal, hlustun og ritun, nemendur vinna með ýmis þemu tengd spænskumælandi löndum. Þeir læra og þjálfast í meira krefjandi orðaforða og tileinka sér flóknari málnotkun. 

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • víðtækari og flóknari orðaforða en áður
  • meginatriðum spænskrar málfræði
  • skilning á mismunandi menningarþáttum spænskumælandi landa

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • taka þátt í samræðum um ýmis málefni líðandi stundar og tjá skoðun sína, aflað sér munnlegra upplýsinga og svara spurningum um hversdagsleg málefni
  • skilja texta af ýmsum gerðum, eins og t.d. smásögur og skáldsögur sem sérstaklega eru samdar fyrir nemendur (léttlestrarbækur). Einnig að geta lesið sér til gagns blaðagreinar og ýmsar upplýsingar eða leiðbeiningar
  • skrifa lengri texta en áður, t.d. bréf, útdrætti úr bókum eða kvikmyndum, stutta leikþætti og myndatexta

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tileinka sér innihald texta og skilja það sem sagt er í flóknari samræðum
  • tjá sig um það sem hann hefur lesið eða heyrt og notað til þess flóknari orðaforða en áður, eins og t.d. ýmis orðatiltæki
  • túlka og leggja mat á aðstæður sem upp koma
  • skrifa lengri og flóknari texta en áður