SMÍÐ2VB05 - Málmsmíðar 3 - sjálfstætt smíðaverkefni
Lýsing
Málmsmíðar 3- sjálfstætt smíðaverkefni
Einingafjöldi : 5
Þrep : 2
Nemandinn velur verkefni í samráði við kennara og gerir vinnuteikningar og smíðar hluti eða búnað með nákvæmni sem krafist er almennt við smíði vélbúnaðar. Beitt er aðferðum þar sem krafist er kunnáttu og færni í rafsuðu og rennismíði og beitingu handverkfæra, smíðavéla og tækja. Að auki er dýpkuð þekking nemenda á spennum af völdum álags á málmhluti af algengri lögun. Kenna þarf áfangann samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni með viðeigandi vottun. Nám í áfanganum (og undanfarandi áföngum ef við á) skal samsvara þeim kröfum sem gerðar eru í tilteknum hlutum samþykktarinnar eins og nánar er tilgreint í tilvísanalista sem fylgir námsbrautarlýsingunni
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- teikningum og hlutateikningum smíðis.
- fjölbreyttum smíðaaðferðum, val á efni og frágangi smíðis.
- málmsuðu, lóðningum og suðustellingum.
- mikilvægi staðla og gagna varðandi álag og þolmörk málma.
- spennum af völdum álags á málmhluti af algengri lögun, s.s. snúnings-, beygju-, högg-, varma- eða þrýstiálag á öxla, plötur, hringi, tannhjól og gorma.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita margvíslegum tækjum og búnaði við smíði og vinnslu á málmum.
- nota teikniforrit til að útfæra vinnuteikningar og gera breytingar á teikningum.
- sneiða hjá því að skapa of spennuhátt ástand í smíðisgripum.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna sjálfstætt og gera grein fyrir verkefninu og framkvæmd þess.
- taka sjálfstæðar ákvarðanir um verklag og setja upp verkferla.
- geta rökstutt val á aðferðum, efnum, áhöldum og tækjum.
- gera efnislista byggðan á útfærðum teikningum.