REIT2BR04 - Rafeindatækni 2

Lýsing

Rafeindatækni 2

Einingafjöldi : 4

Þrep : 2

Áfanginn er framhald af REIT2VA04 og er hér haldið áfram að fjalla um BJT transistora. Þeir eru nú skoðaðir sem magnarar í mismunandi tengingum. Einnig er farið í aðra hálfleiðaraíhluti svo sem díak triak og týristor og virkni þeirra og notkun skoðuð. Nemendur kynnast einnig FET - transistorum og aðgerðamögnurum í þessum áfanga, helstu útreikningum og notkunarmöguleikum þeirra. Nemendur gera mælingar bæði með mælitækjum og hermiforriti. 

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hvernig hægt er að nota BJT transistora sem magnara og geta reiknað út helstu stærðir í þeim og framkvæmt mælingar.
  • hvernig Diak, Triak og Tyristor virka, tákn og helstu notkunarmöguleika.
  • táknum og DC-reikningum varðandi FET transistora.
  • tákni, helstu virkni og notkunarmöguleikum aðgerðarmagnara.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • framkvæma alla helstu útreikninga varðandi BJT transistora bæði AC og DC.
  • framkvæma DC-útreikninga í rásum með FET-transistorum.
  • framkvæma mælingar á rásum með hinum ýsmu hálfleiðaraíhlutum.
  • reikna út mögnun í aðgerðamagnararásum.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tengja eftir teikningu allar helstu gerðir magnara með BJT-transistorum og framkvæma á þeim útreikninga og mælingar bæði hvað varðar AC og DC.
  • tengja eftir teikningu magnara með FET-transistorum og gera á honum DC-útreikninga og mælingar.
  • nýta sér hermiforrit við gerð mælinga og setja niðurstöður mælinga fram í skýrslu.
  • geta tengt og framkvæmt mælingar á magnararás með aðgerðarmagnara.
  • geta tengt eftir teikningu og framkævmt mælingar á rásum með öðrum hálfleiðaraíhlutum svo sem diak, triak og týristor.