REIT2AR04 - Rafeindatækni 1
Lýsing
Rafeindatækni 1
Einingafjöldi : 4
Þrep : 2
Áfanginn fjallar um hálfleiðara, sérstaklega helstu gerðir af díóðum (tvistum), virkni þeirra og notkunarmöguleika. Farið er í hvernig nota má díóður í afriðun og kenndar nokkrar leiðir til að umbreyta AC í DC. Einnig er farið í grunnvirkni transistors og hvernig hann er forspenntur og farið í DC útreikninga transistors. Gert er ráð fyrir að nemendur læri einnig á helstu mælitæki svo sem fjölsviðsmæli og sveiflusjá auk þess að nota hermiforrit við mælingar á rásum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- teiknitáknum díóða og BJT transistora.
- virkni díóða og BJT transistora.
- helstu gerðum afriðla og virkni þeirra.
- í hvað þessir íhlutir eru helst notaðir.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- reikna einfaldar rásir með díóðum og transistorum.
- reikna út DC spennu á mismunandi afriðlum.
- teikna einfaldar rafeindarásir.
- nota helstu mælitæki sem notuð eru í rafeindatækni.
- nota hermiforrit til mælinga á rafeindarásum.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna einfaldar rafeindarásir með díóðum og transistorum.
gera mælingar á þessum rásum og geta reiknað þær til samanburðar á mældum niðurstöðum.
geta skilað af sér skýrslu um mælingar á rásum.
geta framkvæmt mælingar til að ganga úr skugga um hvort íhlutir séu í lagi eða ekki.