RAMV2DV04 - Rafmagnsfræði 4
Lýsing
Rafmagnsfræði 4
Einingafjöldi : 4
Þrep : 2
Nemendur öðlast djúpan skilning á eðli riðstraums og þeim lögmálum og hugtökum sem þar eiga við. Þeir læra að nota vektoramyndir og stærðfræðilega útreikninga til að öðlast skilning á orsökum og áhrifum fasviks í einfasa og þriggja fasa riðstraumsrásum. Ennfremur öðlast nemendur leikni í notkun vektoramynda við útreikninga RLC rása.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grundvallarhugtökum riðstraumsfræðinnar.
- fasviki í riðstraumsrásum og orsökum þess.
- notkun vektora við að ákvarða stærðir í riðstraumsrásum.
- notkun hornafalla í stærðfræði til að reikna út stærðir í vektoramyndum.
- aðferðum við að leiðrétta fasvik í riðstraumsrásum.
- skiptingu rafafls í raun-, laun- og sýndarafl.
- RLC rafrásum og einföldum raforkukerfum skipa.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- gera vektoramyndir og útreikninga á einfasa riðstraumsrásum með blönduðu álagi.
- gera útreikninga á þriggja fasa riðstraumsrásum með og án fasviks.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- átta sig á raforkukerfum skipa og annast rekstur þeirra.
- útskýra orsakir og áhrif fasviks í riðstraumsrásum.
- leiðrétta fasvik í raforkukerfum.
- skýra með vektoramyndum og stærðfræðilegum útreikningum áhrif fasviks í riðstraumsrásum.