NEYS2PL04 - Neysluvatnskerfi
Lýsing
Neysluvatnskerfi
Einingafjöldi : 4
Þrep : 2
Í áfanganum er farið yfir hvernig lagnir fyrir heitt og kalt neysluvatn eru lagðar að töppunarstöðum í byggingum. Fjallað er um lagnaefni sem til greina kemur, allar gerðir tenginga og tengiaðferðir. Skoðaðar eru mögulegar lagnaleiðir með sérstakri áherslu á að sem minnst leiðni verði milli heitrar og kaldrar leiðslu. Sérstök áhersla er lögð á einangrun röra, ekki síst kaldra röra með tilliti til daggarmyndunar. Reiknaðar eru röravíddir út frá fjölda töppunarstaða og áætlaðrar notkunar á vatni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lagnaefnum og búnaði sem notaður er í neysluvatnslagnir innanhúss, s.s. tengjum, ventlum, stýritækjum, festingum o.fl.
- áhöldum og tækjum sem notuð eru við lagningu neysluvatnslagna.
- áhöldum og rafmagnsverkfærum til að leggja og festa upp lagnir.
- búnaði til að yfirfara og þrýstiprófa neysluvatnskerfi.
- öryggisreglum og hlífðarbúnað fyrir viðkomandi áhöld og tæki.
- kröfum um brunavarnir við lagnir milli brunahólfa.
- kröfum um hreinlæti og HACCP kerfi.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- velja lagnaefni með hliðsjón af aðstæðum.
- velja rétt áhöld og tæki til að tengja saman lagnaefni og búnað.
- velja lagnaleiðir og einangrun fyrir neysluvatnslagnir innanhúss.
- meta nauðsyn hljóðdempunar frá lögnum og hvernig festa skuli neysluvatnslagnir.
- vinna með snittvélar, þrýstitangir, suðutæki og lóðtæki til tengingar lagna úr málmum.
- vinna með þrýstitangir og suðuvélar til að tengja lagnir úr plasti.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leggja neysluvatnslagnir fyrir heitt og kalt vatn innanhúss.
- nota íslenska gagnabankann um vatn.
- leggja neysluvatnskerfi í byggingar í samræmi við íslenska staðla.
- ganga á öruggan hátt frá lögnum í votrýmum í samvinnu við aðra iðnaðarmenn.
- þrýstiprófa neysluvatnskerfi á mismunandi hátt eftir lagnaefnum.
- skrá og merkja ventla og stýritæki neysluvatnskerfa og setja upp skýringartöflur.
- áætla neysluvatnsnotkun og reikna rörasverleika.
- vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað.