LOKA3MR07 - Lokaverkefni múraraiðn

Lýsing

Lokaverkefni í múraraiðn

Einingafjöldi : 7

Þrep : 3

:Í áfanganum vinna nemendur verkefni sem felur í sér samþættingu þekkingar og færni sem aflað hefur verið í skóla og á vinnustað á námstímanum. Áhersla er lögð á skipulagningu, framkvæmd, eftirlit, skráningu og rökstuðning en að öðru leyti er ekki um að ræða fyrirfram ákveðna verkþætti. Reynt er að líkja eftir aðstæðum í atvinnulífinu og því hefur nemandi aðgang að öllum fyrirliggjandi gögnum, efni, áhöldum og tækjum meðan á verkefninu stendur. Um er að ræða verklegan hluta sveinsprófs í múraraiðn. Þar sem verkefninu er ætlað að endurspegla raunverulegar aðstæður er æskilegt að tíminn sem ætlaður er til þess dreifist ekki á langt tímabil.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • viðeigandi lögum, reglugerðum og stöðlum.
  • gerð verkáætlana og kostnaðaráætlana.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna verkáætlun og afmörkuð hönnunargögn.
  • vinna í samræmi við áætlanir um tíma og kostnað.
  • gera grein fyrir efnisafföllum og frávikum frá kostnaðaráætlun.
  • leggja mat á verkáætlun og hönnunargögn vegna verksins.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • undirbúa verkefni sem honum er fengið á eigin spýtur.
  • búa til efnis‐ og kostnaðaráætlun.
  • velja heppileg áhöld og tæki fyrir einstaka verkþætti.
  • afla sér upplýsinga um útfærslur, efni, áhöld og tæki.
  • framkvæma verkefnið sjálfstætt í samræmi við áætlanir.
  • fylgja fyrirliggjandi verkáætlun og hönnunargögnum.
  • vinna í samræmi við lög, reglugerðir og staðla.
  • vinna með hliðsjón af gæðakröfum og viðurkenndu verklagi.
  • vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað.
  • gera öðrum grein fyrir verkefninu og framkvæmd þess.
  • rökstyðja val á aðferðum, efnum, áhöldum og tækjum.
  • gera grein fyrir notkun og viðhaldi á áhöldum og tækjum.
  • meta gæði verks með hliðsjón af lögum, reglugerðum og stöðlum.