Lýsing
Líffræði : erfðafræði
Einingafjöldi : 5
Þrep : 2
Áfanginn tekur að langmestu leyti á erfðafræði mannsins. Erfðafræði, erfðatækni, arfgengir sjúkdómar og sjúkdómar af völdum litningagalla, örverur, fósturþroskun og þróunarfræði eru til umfjöllunar. Kennslan fer fram með innlögn í formi fyrirlestra og verkefnavinnu þar sem nemendur vinna sem einstaklingar eða í hópum. Verklegar æfingar og skýrslur eru einnig hluti kennslunnar.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnlögmálum, ferlum og eiginleikum frumuskiptinga og erfða
- stigum fósturþroskans
- erfðamengi mannsins, afritun og prótinmyndun
- erfðatækni og rannsóknaraðferðum
- grundvallarlögmálum þróunar
- örverum og príonum
- hvernig nýta má örverur í rannsóknum í erfðafræði
- orðaforða erfðafræðinnar á ensku
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina á milli meiósu og mitósu
- lesa erfðafræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
- rekja einfaldar erfðir
- segja fyrir um líkur á erfðum tengdra og ótengdra eiginleika
- tengja saman basaröð í DNA og amínósýrusamsetningu próteina
- fjalla um siðferðileg álitamál erfðatækninnar
- öflun frekari upplýsinga á sjálfstæðan hátt ásamt beitingu ýmiss konar rannsóknartækja við verklegar æfingar til að dýpka skilning sinn á námsefninu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- auka skilning sinn á erfðafræðilegum viðfangsefnum
- taka rökstudda afstöðu til erfðafræðilegra dægurmála
- vinna saman í hópum og miðla niðurstöðum á gagnrýninn hátt í töluðu eða rituðu máli, myndrænt eða með töflum
- tengja saman efnisþætti við úrlausn verkefna með tilvísun í heimildir og draga ályktanir
- tengja undirstöðuþekkingu í erfðafræði við daglegt líf og átta sig á notagildi hennar