LEIK1SP05 - Spuni

Lýsing

Leiklist : spuni

Einingafjöldi : 5

Þrep : 1

Áfanginn skal veita grunnþekkingu á verkfærum leikarans í spunavinnu. Mikil áhersla er lögð á að að þjálfa öguð, skapandi og jákvæð vinnubrögð. Unnið er með öll þau tækifæri sem felast í spunavinnu. Nemendur þjálfast í að byggja upp persónur frá grunni, stök atriði og að byggja upp heil leikrit. 

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi þess að nýta sér jákvæðni í samvinnu við aðra í leiklist
  • mikilvægi þess að vinna hratt og ákveða ekki endapunkt vinnunnar fyrirfram
  • tækifærunum sem felast í mistökunum
  • mikilvægi þess að stjórna ekki framvindunni í spunaatriðum
  • mikilvægi flæðisins fremur en endapunktsins í spuna
  • mikilvægi mótleikarans
  • aðstæðum og kringumstæðum í spunaleik
  • hinum gefnu forsendum í leiklist
  • hver verkfæri leikarans í spunavinnu eru (rödd, líkama, tilfinningum og ímyndunarafli)
  • spuna annars vegar og forskrifaðri vinnu hins vegar
  • hvernig uppbygging atriða skiptist upp í fjölmargar kringumstæður og aðstæður
  • uppbyggingu persóna og hversu miklar upplýsingar áhorfandi þarf að hafa til að skynja persónuna til fulls
  • persónusköpun í leikhúsi og hvernig hægt er að gefa heilstæða mynd af persónu á sviði

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita jákvæðri hlustun í sköpun á spunaatriðum
  • taka við uppbyggilegri gagnrýni
  • vinna hratt og örugglega og véfengja ekki ákvarðanir sínar
  • nýta sér mistök sín sem tækifæri
  • tjá sig um uppbyggingu atriða samnemenda sinna
  • leyfa flæði í spuna að færa sig nær lokapunkti atriðis
  • skynja umhverfi sitt og hið ósagða í spuna
  • beita hinum gefnu forsendum í spuna án umhugsunar
  • beita verkfærum leikarans í spuna
  • nýta sér mismunandi leikstíla
  • gera sér grein fyrir mismunandi tækni sem þarf í harmrænu atriði annars vegar og gamansömu atriði hins vegar
  • hita sjálfan sig upp í orku sem passar vinnunni
  • nýta rými á mismunandi hátt í leiksenum
  • vinna uppbyggilega og gefandi með öðrum
  • einbeita sér í hugmyndavinnu og allri vinnu sem fer fram á leiksviði
  • beita sjálfstæðum vinnubrögðum og sjálfsaga í leiklistarvinnu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • búa yfir jákvæðu og uppbyggilegu viðhorfi í sköpunarvinnu gagnvart mótleikara eða hópi ...sem er metið með... sjálfrýni og símati
  • geta sett upp leikverk án fyrirvara ...sem er metið með... gólfvinnu
  • geta nýtt spuna til að búa til heilsteypta persónu ...sem er metið með... gólfvinnu, umræðum og vinnubók
  • vinna sjáfstætt ...sem er metið með... sjálfsrýni og gólfvinnu
  • gera sér grein fyrir og nýta frumkvæði sitt ...sem er metið með... sjálfrýni, gólfvinnu og vinnubók
  • greina senur og persónur út frá orku, stærð og stíl ...sem er metið með... gólfvinnu og stöðumati
  • setja sig í spor persóna og nýta verkfæri leikarans til að túlka tilfinningar og vilja á sviði ...sem er metið með... gólfvinnu og stöðumati
  • beita hlustun og orkustigi í samvinnu og sviðsvinnu ...sem er metið með... gólfvinnu og stöðumati
  • beita sjálfstæðum vinnubrögðum og frumkvæði í spuna sem metið er með sjálfsrýni, símati og vinnubók
  • geta unnið án ritskoðunar á sjálfan sig, aðra og framvindu meðan á gólfvinnu stendur ...sem er metið með... símati og vinnubók