ÍSLA2ÍA05 - Íslenska sem annað tungumál

Lýsing

Íslenska sem annað tungumál

Einingafjöldi : 5

Þrep : 2

Í áfanganum vinna nemendur með íslenskt mál sem sitt annað tungumál. Reynt er að koma til móts við þarfir nemenda og staða hvers og eins er metin. Tekið er mið af bakgrunni og færni nemandans. Unnið er út frá eftirfarandi grunnhugmyndum: 1) Að verða hluti af samfélaginu 2 )að tileinka sér nýtt tungumál og 3) að kynnast nýjum menningarheimi. Unnið er með eitt þema. Í áfanganum er lagt upp með að nemendahópurinn kynnist vel innbyrðis og öðlist þannig meira sjálfstæði og öryggi í náminu.

Þekkingarviðmið

Nemandi hafi aflað sér þekkingar og skilnings á:

  • grunnatriðum í málfræði og ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli
  • grunnatriðum í málnotkun sem nýtast í tal- og ritmáli
  • fjölbreyttum orðaforða
  • grunnhugtökum í ritun
  • nokkrum gerðum bókmennta- og nytjatexa
  • grunnatriðum í íslenskum framburði

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

  • að nýta grunnreglur í málfræði og málnotkun í ræðu og riti
  • að lesa sér til gagns einfalda texta og upplýsingar úr umhverfinu
  • að skrifa einfalda nytjatexta
  • að tjá sig á skiljanlegan hátt um einfalt efni
  • að draga saman aðalatriði úr fyrirlestrum og ritmáli
  • að leita upplýsinga úr heimildum
  • að taka saman og flytja stuttar endursagnir
  • að fylgja einföldum meginþræði frásagnar
  • að beita skipulögðum og sjálfstæðum vinnubrögðum
  • að nota hjálpargögn og leiðréttingarforrit til að lagfæra eigin texta

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • halda uppi samræðum á einföldu mál um efni sem hann hefur kynnt sér
  • efla ábyrgðartilfinningu gagnvart sjálfum sér, námi sínu og umhverfi.
  • efla sjálfsöryggi í ritun og tjáningu, efla sjálfstæði og vandvirkni í vinnubrögðum
  • skoða viðhorf og gildi sem móta menninguna á Íslandi