HEIM2AA05 - Inngangur að heimspeki
Lýsing
Inngangur að heimspeki
Einingafjöldi : 5
Þrep : 2
Í áfanganum verða teknir fyrir valdir þættir í vestrænni heimspekisögu frá Grikklandi til forna fram að lokum 20. aldar. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu í þróun heimspeki í gegnum mannskynssöguna ásamt grundvallarskilningi á helstu heimspekikenningum sem hafa mótað viðhorf mannsins til siðferðis, frelsis, trúar og náttúrunnar. Markmið áfangans er að fræða nemendur um fjölbreyttar hugmyndir og stefnur innan heimspekinnar og kynna fyrir þeim aðferðir við að ræða og taka afstöðu um álitaefni í menningu og tilveru mannsins. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda þar sem gerð verður krafa um sjálfstæði þeirra í skoðanamyndun og rökræðum. Verkefnavinna miðar að því að nemendur öðlist hæfni til að móta eigin þekkingu og viðhorf við úrlausn fjölbreyttra viðfangsefna.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- viðfangsefni heimspekinnar, helstu spurningum og greinum
- frumherjum grískrar heimspeki og hugmyndum þeirra
- grískum hugtökum og gríska stafrófinu
- helstu ritum heimspekinga sem fjallað verður um
- hugmyndum Sókratesar og Platons um dyggð, samræðuaðferð, frummyndir, hið góða líf, þekkingu, fyrirmyndarríkið, skynsemi, hin sanna raunveruleika, réttlæti og afstæðishyggju
- kenningum Aristótelesar um meðalhóf og dyggðir, breyskleika, manneðli, fjórar ástæður hlutanna, form og efni, möguleika og virkni, þrískiptingu vísinda og frumhreyfilinn
- heimspekinni undir kirkjunni, hugmyndum Plótínusar og Ágústínusar um æðri veruleika, hið góða og tímann
- aðferð efans eins og henni er beitt af Descartes, hugmyndinni um Guð og sjálfsvitundina
- hugmyndum Kants um þekkingu, sjálfstæða hugsun og upplýsingu, skynsemi, hinn góða vilja, markmið og tæki, skilyrðislaust skylduboð.
- hugmyndum John Stuart Mill um frelsi, hámarkshamingju, hagsmuni annarra, kúgun kvenna, nautnareikning, mælikvarða á gæði, tjáningarfrelsi
- kenningu Sartre um frelsi, eðli, ábyrgð og angist
- Páli Skúlasyni og skrifum hans um gagnrýna hugsun og gildin í lífinu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- hafa spurt sjálf sig heimspekilegra spurninga eins og: Hvað er raunveruleikinn? Hvernig virkar heimurinn? Hvað hefur gildi í lífinu? Eru aðrir til? Hvað er þekking? Er til æðri veruleiki?
- orða hugsanir sínar
- hlusta á aðra
- færa rök fyrir skoðunum sínum
- gera útdrætti úr textum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- greina mikilvægi þess að skilja hugmyndir annarra
- greina heimspekileg vandamál í daglegu umhverfi og menningu.
- geta greint aðferð og rökfærslu heimspekings við lestur á skrifum hans
- greina ólíkar athafnir í samræðum.
- sýna öðrum virðingu og umburðarlyndi jafnframt því að rækta með sér sjálfstæðar skoðanir og þor til að tala fyrir þeim