HBFR1SA03 - Heilbrigðisfræði - grunnur

Lýsing

Heilbrigðisfræði – grunnur

Einingafjöldi : 3

Þrep : 1

Í þessum áfanga öðlast nemendur þekkingu og færni til að veita skyndihjálp við bráðasjúkdómum eða slysum, geta lagt mat á ástand hins sjúka eða slasaða, geta búið um áverka og búið sjúkling undir flutning til læknis. Nemandinn á að öðlast þekkingu á innihaldi lyfjakistu, þekkja þau lyf sem þar eru, áhrif þeirra og aukaverkanir, geta gefið sýklalyf og verkjalyf og beitt lyfjagjöf í samráði við lækni. Nemandinn þarf einnig að geta búið um minniháttar sár og stöðvað minniháttar blæðingar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • vefjabyggingu líkamans og líffærakerfi.
  • algengustu sjúkdómum sem skyndilega geta gert vart við sig.
  • réttum viðbrögð við sjúkdómum og slysum um borð.
  • hvaða ráðstafanir skuli gera áður en hreyft er við þeim sem hefur slasast við fall.
  • aðferðum við að leggja mat á ástand sjúklings.
  • réttum aðgerðum og viðbrögðum við slysum, svo sem líkamlegum áverka, losti, eitrunum, ofkælingu og bruna.
  • þeim þáttum sem huga þarf að þegar búið er um áverka.
  • gildi sótthreinsunar og nauðsyn þess að þvo sár og skipta um umbúðir.
  • líkamlegri og andlegri aðhlynningu sjúklinga eftir slys, þ.m.t. þeirra sem bjargað er úr sjávarháska.
  • réttum viðbrögðum við slysum um borð í skipum þar sem talið er að eiturefni hafi borist úr umbúðum.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita aðferðum við lífgunartilraunir, þar með talin súrefnisgjöf.
  • beita hjartahnoði og veita aðstoð við hjartastopp.
  • búa um einföldustu beinbrot til bráðabirgða.
  • gefa sjúklingi lyf með sprautu í vöðva.
  • mæla blóðþrýsting.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • veita skyndihjálp við bráðasjúkdómum eða slysum.
  • leggja mat á ástand hins sjúka eða slasaða.
  • búa um áverka og búa sjúkling undir flutning til læknis.
  • gefa lyf í samráði við lækni.