FÉLV1IF05 - Inngangur að félagsvísindum

Lýsing

Félagsvísindi : Inngangur að félagsvísindum

Einingafjöldi : 5

Þrep : 3

Áfanginn er inngangur að félagsvísindum. Efni hans er kynning á félagsvísindum og sjónarhorni þeirra á hina ýmsu þætti samfélagsins. Kynnt verða grundvallarorð og hugtök félagsvísinda og rýnt í þýðingu þeirra og notkun í fræðilegu samhengi. Leitast verður við að nota upplifun, reynslu og skilning nemenda á grundvallar þáttum samfélagsins til samanburðar við sjónarhorn félagsvísinda. Miðað er að því að dýpka skilning nemenda á samspili hegðunar og hugarfars einstaklinga við uppbyggingu ólíkra samfélagsgerða og alþjóðasamskipta. Fjallað verður um samverkandi áhrif samfélagslegra þátta á borð við þjóðerni, menningu, fjölskyldu, menntun, starfshætti og trú. Lögð er áhersla á að nemendur rökræði stöðu sína sem þátttakendur í samfélaginu, réttindi, skyldur og gildismat þar sem dregin er fram ábyrgð á eigin gerðum. Markmiðið er að nemendur átti sig á gildi umburðarlyndis og virðingar fyrir mismunandi lífsgildum og ólíkri afstöðu fólks til álitamála. Í áfanganum er fjallað um áhrif samfélagsins í mótun einstaklinga. Grunnur er lagður að mikilvægum hugtökum sem eru notuð í umræðu um samfélög og þróun þeirra. Fjallað verður um menningu, samfélag, fjölskylduna, samskipti, jafnrétti kynjanna, vinnumarkað og stjórnmál.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • sjónarhorni, einkennum og aðferðum félagsvísinda
  • helstu innviðum samfélagsins, s.s. fjölskyldu, vinnumarkaði, stjórnkerfi og menningu
  • hvernig samfélagið mótar einstaklinginn og hvernig einstaklingurinn mótar samfélagið

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • útskýra grunnhugtök félagsvísinda, s.s. fjölmenningu, jafnrétti, lýðræði og staðalmyndir o.fl.
  • setja fram eigin skoðanir og kenningar um margvísleg samfélagsleg málefni og geta rökrætt þær
  • undirbúa málflutning og færa rök fyrir skoðunum sínum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tengja þær fræðihugmyndir og hugtök sem fjallað er um í áfanganum við einstök dæmi úr raunveruleikanum
  • vegið og metið skoðanir og upplýsingar og brugðist við þeim á fordómalausan hátt með rökstuðningi
  • geta útskýrt með dæmum margbreytileika mannlífsins og ólíkan bakgrunn fólks
  • komið þekkingu sinni og viðhorfum á framfæri með fjölbreyttum og markvissum hætti, einn sér og í samstarfi við aðra