FÉLA3ÞR05 - Félagsfræði þróunarlanda
Lýsing
Félagsfræði : Félagsfræði þróunarlanda
Einingafjöldi : 5
Þrep : 3
Nemendur kynnast hugmyndum um skiptingu heimsins í þróuð lönd og vanþróuð. Farið er yfir þau hugtök sem hafa verið notuð um þróunarlönd og nemendur kynnast ólíkri merkingu þróunarhugtaksins. Fjallað er um menningu í þriðja heiminum og nemendur kynnast ólíkum kenningum um orsakir vanþróunar. Fjallað er um kosti þróunarsamvinnu, þátttöku Íslendinga í henni og gagnrýni á þessa samvinnu. Nemendur afla eigin upplýsinga um þróunarlönd og vinna úr þeim.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu viðfangsefnum og kenningum félagsfræði þróunarlanda
- helstu skýringum á þróunarvanda
- mismunandi tegundum þróunarsamvinnu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita mismunandi kenningum til að skoða þróun og þróunarsamvinnu
- afla eigin upplýsinga um vanda þróunarlanda og vinna úr þeim
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera grein fyrir þeim efnahagslegu- og félagslegu vandamálum sem ríki þriðja heimsins eiga við að etja
- leggja gagnrýnið mat á mismunandi hugmyndir um þróun og vanþróun
- meta ólíkar kenningar um vanda þróunarríkja
- meta kosti og galla þróunarsamvinnu
- taka gagnrýna afstöðu til umræðu um vanda þróunarlanda og misskiptingar í heiminum