ENSK1MT04 - Ensk málfræði
Lýsing
Enska : Enska með áherslu á málfræði
Einingafjöldi : 4
Þrep : 1
Starfsbrautaráfangi
Unnið verður með grunnatriði enskrar málfræði og ritunar. Í áfanganum rifja nemendur upp þá færni sem þeir hafa þegar náð og þjálfa upp ný atriði.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Grunnþáttum enskrar réttritunar
- Einfaldri ritun sem felur í sér stuttar setninga og stök orð
- Að áherslur í framburði eru misjafnar hjá hverjum og einum
- Mikilvægi þess að hafa ensku á valdi sínu bæði á atvinnumarkaði og í einkalífi
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Setja sér raunhæf markmið og þekkja leiðir að þeim
- Leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
- Geta ritað stutt skilaboð á enskri tungu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Nýta sér enska málfræði í ræðu og/eða riti
- Koma auga á styrkleika sína
- Efla sjálfstraust sitt