ENSK1GR05 - Enska grunnáfangi

Lýsing

Enska : grunnáfangi 

Einingafjöldi : 5

Þrep : 1

Markmið áfangans er að nemendur nái tökum á undirstöðuatriðum enskrar málfræði, geti skilið daglegt mál og tjáð sig um einfalda hluti munnlega og skriflega. Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur lesi fjölbreytta texta til þess að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða og tjá hugsun sína bæði í ræðu og riti á skipulegan hátt og geti rökstutt hugmyndir sínar. Lögð er áhersla á að nemendur tali skýrt mál og noti það á réttan og viðeigandi hátt. Nemendum er gerð grein fyrir því hvernig þeir geti sjálfir bætt við þekkingu sína og tekið ákvarðanir er varða tungumálanám þeirra. Til þess að nemendur öðlist sjálfstæði í námi er lögð áhersla á að nemendur vinni sjálfstætt að hinum ýmsu verkefnum og kynningum. Hver nemandi finni eigin leiðir til að ná árangri í náminu og setji sér markmið.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu málfræðiatriðum og orðflokkum
  • nýjum grunnorðaforða
  • helstu málfræðiatriðum og geta notað þau á réttan hátt í mæltu og rituðu máli
  • stuttum textum
  • ritun stuttra texta
  • grunntjáningu á ensku
  • hlustun á ensku
  • notkun hjálpargagna, svo sem notkun stafrænna orðabóka og leiðréttingarforrita

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa og skilja einfalda texta, svo sem blaðagreinar, smásögur og stuttar skáldsögur með það að markmiði að auka orðaforða sinn og afla upplýsinga
  • nota mismunandi aðferðir til að læra helstu málfræðiatriði, svo sem lestur og glósur
  • skrifa stutta texta um kunnugleg málefni
  • hlusta á enska tungu og skilja inntak efnisins

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • lesa og skilja almenna, einfalda texta og segja frá innihaldi þeirra í aðalatriðum sem meta má með munnlegum og skriflegum verkefnum
  • gera greinarmun á mismunandi málnotkun eftir aðstæðum og fylgja eftir og taka þátt í samræðum um efni sem farið hefur verið í
  • endursegja efni sem hann hefur lesið eða heyrt
  • beita mismunandi aðferðum og hjálpargögnum við ritun svo sem orðabókum og leiðréttingarforritum
  • skilja og geta greint frá aðalatriðum ýmiss konar texta og finna upplýsingar í texta til að svara einföldum spurningum