ENSK1FE04 - Enska - ferðalög erlendis
Lýsing
Enska - ferðalög erlendis
Einingafjöldi : 4
Þrep : 1
Starfsbrautaráfangi
Áhersla er á að nemendur kynni sér ferðalög til annarra landa, hvernig hægt er að komast á áfangastað og hvað svæðið býður upp á fyrir ferðamenn. Nemendur velta fyrir sér umhverfinu, menningunni og fólkinu í landinu. Vinnuferlið miðast við að efla færni og sjálfsmynd nemenda til að takast á við það að verða sjálf ferðamenn sem ferðast til annarra landa í framtíðinni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Hugtakinu ferðaþjónusta
- Mikilvægi þess að geta bjargað sér á öðru tungumáli
- Ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
- Ferðalögum til annarra landa
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nýta sér upplýsingar í umhverfinu, s.s. á flugvöllum og öðrum stöðum sem tengjast ferðaþjónustu
- Kynna sér ferðaáætlanir, hótelupplýsingar og upplýsingar um áfangastaði á veraldarvefnum
- Tjá sig í mæltu og/eða rituðu máli
- Taka þátt í umræðum
- Lesa og/eða hlusta á texta sér til gagns og gleði
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Ferðast um heiminn
- Auka sjálfstraust sitt og trú á eigin færni
- Lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram í útvarpi, sjónvarpi og í netmiðlum
- Lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
- Lesa í ýmsa texta, s.s. bækur, fréttir og fræðigreinar með eða án aðstoðar
- Hlusta á aðra og tjá eigin skoðanir