EFNA2LE05 - Lífræn efnafræði
Lýsing
Efnafræði : lífræn efnafræði
Einingafjöldi : 5
Þrep : 2
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lögun, tengjum og svigrúmablöndun lífrænna sameinda
- áhrifum skautunar og lögunar á eiginleika sameinda
- helstu reglum IUPAC-nafnakerfisins
- helstu flokkum lífrænna efna, einkennum þeirra og byggingu
- helstu efnahvörfum lífrænna efna
- hendni lífrænna sameinda
- helstu byggingareinkennum og skilgreiningum sykra, lípíða og próteina
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota flokkun og nafnakerfi lífrænna efna
- teikna mismunandi ísomerur eins og rúmísómerur og byggingarísómerur
- rita helstu efnahvörf lífrænna efna
- skoða svigrúmablöndun kolefnis í mismunandi efnasamböndum
- skoða lögun sameinda og segja til um skautun þeirra
- teikna byggingaformúlur og skoða eiginleika fjöltengja
- teikna uppbyggingu lífefna í flokkunum: prótein, sykrur, lípíð
- miðla upplýsingum til samnemenda
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta þekkingu á skautun og lögun til að spá fyrir um eðlis- og efnaeiginleika lífrænna efna
- meta út frá byggingaformúlu eða nafni hvaða flokki lífrænna efna sameindin tilheyrir
- rökstyðja út frá byggingaformúlu eða nafni efnahvörf sameindarinnar
- tengja saman lífræna efnafræði og aðrar náttúrufræðigreinar
- nýta sér fræðilegan texta og gögn á markvissan hátt
- útskýra viðfangsefni áfangans
- taka þátt í rökræðum er lúta að málefnum sem tengjast efnafræði
- tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar