EFNA2ES05 - Efnaorka, lotukerfi, efnatengi, lögun sameinda
Lýsing
Efnafræði : efnaorka, lotukerfi, efnatengi, lögun sameinda
Einingafjöldi : 5
Þrep : 2
Í þessum áfanga er haldið áfram með grunnatriði efnafræðinnar jafnframt því sem byrjað er að byggja ofan á fyrri þekkingu. Efnisþættir eru: orkuhugtakið almennt og í tengslum við efnahvörf, Nánar fjallað um Lotukerfi og orkustiga rafeinda, skematísk framsetning efnatengja og Lewis myndir, tengi innan og á milli sameinda, flokkar efnasambanda, lögun sameinda, VSPER þrívíddarkerfið og IUPAC nafnakerfið.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnhugmyndum um orku og lögmál um varðveislu orkunnar, innri orku og hvarfvarma
- skematískri framsetningu tengja
- áttureglunni og tengslum hennar við Lotukerfið
- hvernig tákna má sameindir í fleti og teikna Lewis myndir
- tengjum innan sameinda og milli sameinda
- flokkun efnasambanda
- lögun sameinda
- IUPAC nafnakerfi
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- reikna stöðu- og hreyfiorku út frá mælistærðum
- vinna með umbreytingu orku milli orkuforma og nota orku með efnajöfnum, teikna Lewis myndir og nota þær til að finna líklegustu samsetningu sameindar
- greina á milli tengjagerða innan sameinda og milli sameinda
- greina flokka efnasambanda og gefa efnunum nöfn samkvæmt IUPAC nafnakerfinu
- skrifa skýrslur um tilraunir
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
- túlka efnatákn og efnajöfnur
- nýta hópavinnu til að leysa flóknari viðfangsefni
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
- setja niðurstöður úr verklegum æfingum fram á skýran hátt
- tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi í auknum mæli
- nota fyrirliggjandi gögn til að leysa flóknari verkefni en áður