Lýsing
Bókfærsla
Einingafjöldi : 5
Þrep : 1
Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um bókhaldshringrásina og helstu reglur tvíhliða bókhalds. Fjallað er um grundvallarhugtökin eignir, skuldir, gjöld og tekjur. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að annast almennar færslur í dagbók, hafi skilning á uppgjöri og geti sett fram efnahags- og rekstrarreikning. Nemendum er veitt innsýn í notkun flestra reikninga sem telja má til grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi. Nemendum er gerð grein fyrir tilgangi bókhalds og kynnt helstu lög um bókhald og virðisaukaskatt.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnatriðum bókhalds svo sem eignum, skuldum, gjöldum og tekjum
- bókhaldshringrásinni og færslum í dagbók og aðalbók
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- færa einfaldar dagbókarfærslur og gera prófjöfnuð
- útbúa rekstrar- og efnahagsreikning í aðalbók
- reikna vexti, virðisaukaskatt, laun, söluhagnað/tap og gera leiðréttingarfærslur
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- færa einfalt bókhald
- túlka niðurstöður úr rekstrar- og efnahagsreikningi