ÁHTÆ1MR04 - Áhalda- og tækjafræði
Lýsing
Áhalda- og tækjafræði
Einingafjöldi : 4
Þrep : 1
Farið yfir heiti, notkunarsvið, meðhöndlun, umhirðu, viðhald og öryggisatriði áhalda, tækja og véla sem notuð eru í múraraiðn. Enn fremur er fjallað um notkun, umhirðu, viðhald og öryggisatriði véla, verkfæra og áhalda á byggingavinnustöðum t.d. krana, lyftubúnað, vinnupalla o.fl.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- öllum helstu handverkfærum í múrsmíði.
- öllum helstu sprautuvélum í múrsmíði.
- öllum helstu gerðum vélsaga í múrsmíði.
- öllum helstu handverkfærum við niðurlögn steinsteypu.
- öllum helstu véla‐ og rafmagnsverkfærum við steypuvinnu.
- öllum helstu handverkfærum við járnabindingar.
- öllum helstu véla‐ og rafmagnsverkfærum við járnabindingar.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota mismunandi flísaskera.
- nota mismunandi flísasagir.
- nota mismunandi blöð í flísa‐ og steinsagir.
- nota helstu stein‐ og höggborvélar.
- nota mismunandi hrærivélar.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- fara með öll algengustu handverkfæri sem notuð eru við múrhúðun.
- fara með öll algengustu handverkfæri sem notuð eru við flísalagnir.
- fara með öll algengustu handverkfæri sem notuð eru við steinlagnir.
- fara með öll algengustu handverkfæri sem notuð eru við einangrun.
- fara með öll algengustu handverkfæri sem notuð eru við steypuvinnu.
- gæta fyllsta öryggis við meðferð ofangreindra tækja.
- sinna þrifum og umhirðu ofangreindra tækja.