MEIS4FJ04 - Fjármál

Farið í gegnum helstu hugtök sem varða fjármál og fjármálalæsi. Mikilvægustu vaxtahugtök eru kynnt. Farið er í núvirði og framtíðarvirði, jafngreiðsluraðir og jafngreiðslulán. Fjallað er um vísitölur og verðtryggingu, gengi og afföll verðbréfa og gengi erlendra gjaldmiðla. Nemanda eru kynntar viðeigandi formúlur og hann æfður í útreikningum með töflureikni.

Þekkingarviðmið

 Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu hugtökum er varða fjármál einstaklinga og smærri fyrirtækja.
  • þeim verkfærum sem nýtast við útreikninga á sviði fjármála.
  • hvernig afla megi frekari þekkingar um ofangreinda þætti.

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • velja réttar formúlur og framkvæma útreikninga sem varða fjármál.
  • nýta töflureikni við gerð áætlana og framkvæmd útreikninga á sviði fjármála.

 

Hæfniviðmið

 Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • meta á grundvelli útreikninga ólíka valkosti hvað varðar ávöxtun eigna, greiðslubyrði lána og fleira er varðar fjármál einstaklinga og smærri fyrirtækja.
  • afla helstu gagna sem hann þarf á að halda varðandi fjármál, greina upplýsingar og vinna úr þeim.