hreyfing, jákvæð upplifun, sjálfstyrking, Útivist
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: Engar.
Markmið námsins er að hafa uppbyggjandi áhrif á líkamlega heilsu og andlega og félagslega líðan. Kennslan byggist á því að styrkja sjálfsmynd nemanda og auka vellíðan hans með iðkun íþrótta og útivistar. Nemendum er kennt að finna álag við hæfi. Markmiðið er að nemendur átti sig á tengslum hreyfingar við lífsgæði og læri leiðir til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju til æviloka.
Þekkingarviðmið
- gildi útivistar og hreyfingar fyrir heilsu og líðan
- samtengingu næringar og hreyfingar við stjórnun líkamsþyngdar
- öflun og framsetningu upplýsinga af netinu og öðrum miðlum
Leikniviðmið
- gera eigin æfingaáætlanir
- nýta umhverfi sitt til líkamsræktar og útivistar
- nýta tækni til greiningar á líkamlegu álagi
Hæfnisviðmið
- stunda útivist sér til heilsubótar og ánægju
- skipuleggja eigin æfingaráætlun og vinna samkvæmt settum markmiðum
- miðla þekkingu sinni um gildi hreyfingar og útiveru
Nánari upplýsingar á námskrá.is