inngangur að sálfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Fimm fein. í félagsvísindum á 1. þrepi.
Áfanganum er ætlað að kynna nemendum sálfræði sem fræðigrein, starfssvið hennar og helstu undirsvið. Helstu sálfræðistefnur og grunnhugtök eru kynnt auk nokkurra vel valinna viðfangsefna sem áhrif hafa haft á sögu og þróunar fræðigreinarinnar. Nemendur kynnast helstu rannsóknaraðferðum sálfræðinnar og þeim hugmyndum sem þar liggja að baki. Stefnt er að því að nemendur fái þjálfun í að beita þessum aðferðum með gerð einfaldrar rannsóknar og framsetningu á niðurstöðum hennar.
Þekkingarviðmið
- þróun fræðigreinarinnar sálfræði
- grundvallarhugmyndum sem móta kenningar í sálfræði
- helstu frumkvöðlum í greininni
- víðfeðmi sálfræðinnar og helstu undirgreinum hennar
- leiðum sálfræðinnar til að útskýra hugsun, hegðun og tilfinningar manneskjunnar
- mótunaröflum einstaklinga og hópa
Leikniviðmið
- beita algengustu hugtökum sálfræðinnar á skýran og skilmerkilegan máta
- skoða eigin hugsun, hegðun og tilfinningar út frá grundvallarhugmyndum sálfræðinnar
- tjá kunnáttu sína á munnlegan og skriflegan hátt
Hæfnisviðmið
- gera sér grein fyrir mótunaráhrifum umhverfis á sjálfan sig og aðra
- gera sér grein fyrir samspili hegðunar, hugsunar og tilfinninga
- geta með einföldum hætti tengt sálfræðilega þekkingu á eigin sjálfsmynd
- tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti sálfræðinnar
- geta framkvæmt einfalda rannsókn og áttað sig á helstu niðurstöðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is