Vettvangsferðir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Námið er að hluta til bóklegt nám og að hluta til fer námið fram í vettvangsferðum. Farið verður yfir samskiptareglur, öryggis og umhverfismál, réttindi og skyldur og hættur í umhverfinu. Í vettvangsferðum kynnast nemendur helstu atvinnutækifærum í umhverfinu og þeim möguleikum sem þau bjóða upp á m.t.t. atvinnuþátttöku.
Þekkingarviðmið
- Fjölbreyttum vinnustöðum í nærumhverfinu
- Tilgangi starfs og mikilvægi þess í tengslum við önnur störf
- Viðeigandi framkomu í vettvangsferðum
- Hættum sem geta verið í starfsumhverfinu
Leikniviðmið
- Að fara í vettvangsferðir og kynna sér sérsvið hvers staðar
- Sækja sér upplýsingar um nýja og framandi vinnustaði
Hæfnisviðmið
- Þekkja mismunandi vettvangsstaði og átta sig á hlutverkum þeirra
- Mikilvægi þess að mæta stundvíslega
- Fara í vettvangsferðir út frá námslegum markmiðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is