Vinnustaðir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í þessum áfanga fá nemendur tækifæri til að kynna sér mismunandi vinnustaði. Við val á vinnustöðum verður tekið mið af óskum nemenda. Starfsnámið verður skipulagt í samráði við vinnuveitendur og hefur kennari eða annar starfsmaður skólans umsjón með starfsnáminu. Nemendur vinna eftir vinnulistum sem taka mið af aðstæðum hverju sinni.
Þekkingarviðmið
- Fjölbreyttum vinnustöðum
- Undirstöðuþáttum þess vinnustaðar sem hann kýs að sinna í sínu starfsnámi
- Þeim áhöldum, tækjum og tólum sem ætlast er til að viðkomandi nýti sér eða meðhöndli úti á vettvangi
- Hættum sem geta verið í starfsumhverfinu
Leikniviðmið
- Velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
- Vinna sjálfstætt eða undir leiðsögn
- Fylgja fyrirmælum
- Fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
- Fylgja samskiptareglum á vinnustað
- Koma sér til og frá vinnu á réttum tímum
Hæfnisviðmið
- Taka þátt í atvinnulífinu
- Biðja um aðstoð ef þess þarf
- Tilheyra starfsmannahópi
Nánari upplýsingar á námskrá.is