Kynjafræði
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með stöðu karla og kvenna í nútímasamfélagi og fjallað um gagnrýna hugsun og nemendur æfðir í að temja sér hana. Fjallað verður um jafnrétti í tengslum við mismun kynjanna og samskipti, sjálfsmynd og sjálfsvitund ásamt almennu heilbrigði.
Þekkingarviðmið
- Mismunandi stöðu karla og kvenna í nútímasamfélagi
- Mikilvægi jafnréttis hvarvetna í þjóðfélaginu
- Gagnrýnni hugsun og merkingu hennar fyrir einstaklinginn
- Mikilvægi réttrar sjálfsmyndar
- Mikilvægi þess að öðlast færni í félagslegum samskiptum
Leikniviðmið
- Beita gagnrýnni hugsun, sérstaklega gagnvart hinum ýmsu miðlum
- Gera sér grein fyrir jafnrétti í þjóðfélaginu
- Skynja hvað er rétt og rangt og geta tekið ákvarðanir í samræmi við það
- Tala um tilfinningar og reynslu í félagslegum samskiptum við bæði kynin
Hæfnisviðmið
- Beita gagnrýnni hugsun í hvívetna
- Horfa á mismunandi þjóðfélagshópa út frá jafnrétti og mannréttindum
- Hafa jákvætt viðhorf gagnvart mismunandi þjóðfélagshópum óháð stöðu þeirra
- Skynja eigin tilfinningar og þarfir og njóta sín í samvistum við aðra
- Geta tekið upplýstar ákvarðanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is