Persónulegt hreinlæti
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að nemandinn öðlist grunnþekkingu í heilbrigðisfræði með áherslu á persónulegt hreinlæti. Unnið verður með þætti sem auka færni nemandans í að taka ábyrgð á eigin líkama og líferni.
Þekkingarviðmið
- Persónulegu hreinlæti og miklvægi þess í daglegu lífi
- Samspili hreinlætis og líðan almennt
- Hvað felst í því að taka ábyrgð á eigin hreinlæti og snyrtimennsku
- Áhrifum lifnaðarhátta á líðan
- Sjálfum sér sem kynveru og ábyrgðinni sem því fylgir
Leikniviðmið
- Stunda ábyrga lífshætti
- Þekkja helstu þætti er varða persónulegt heilbrigði
- Þekkja og greina hollar lífsvenjur og næringu
- Þekkja eigin líkama og taka mark á skilaboðum frá honum
- Að sinna eigin hreinlæti
- Viðhafa ábyrga kynhegðun
Hæfnisviðmið
- Að bera ábyrgð á eigin lífi
- Viðhafa persónulegt hreinlæti
- Viðhalda almennri vellíðan
- Viðhalda og bæta eigin heilsu
- Stunda hollt líferni
- Stunda ábyrga kynhegðun
Nánari upplýsingar á námskrá.is