Fjölmiðlar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Mismunandi fjölmiðlar verða skoðaðir fjölbreytt. Skoðað verður á gagnrýnan hátt hvernig samskiptatæki fjölmiðlar eru og áhersla verður á að gera nemendur meðvitaða um mikilvægi, gildi og siðfræði og þær hættur sem tengjast fjölmiðlum nútímans.
Þekkingarviðmið
- Helstu tegundum fjölmiðla
- Hugtakinu tjáningarfrelsi
- Gildi fjölmiðla í lýðræðissamfélagi
- Hættum sem tengjast fjölmiðlum nútímans
Leikniviðmið
- Nálgast mismunandi fjölmiðla óháð miðlunarformi
- Draga aðalatriði út mismunandi fréttatilkynningum
- Endursegja eða endurflytja afmarkað efni
- Nýta sér fjölmiðla sér til gagns og/eða gleði
- Taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
Hæfnisviðmið
- Vera meðvitaður um styrkleika, veikleika og hættur fjölmiðla
- Tjá sig um ýmis málefni sem fram koma í fjölmiðlum
- Nýta sér upplýsingar frá fjölmiðlum á gagnrýnan hátt
- Aðgreina auglýsingar frá öðru sem kemur fram í fjölmiðlum
Nánari upplýsingar á námskrá.is