Kynfræðsla
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á kynfræðslu í þeim tilgangi að nemendur viti hvað felst í kynheilbrigði og að þeir öðlist jákvæðan skilning á kynlífi og öðlist hæfni til að viðhalda eigin kynheilbrigði. Stuðlað verður að því að nemendur læri að taka ábyrgar ákvarðanir á líðandi stundu og í framtíðinni.
Þekkingarviðmið
- Vexti og þroska líkamans
- Hugtökum um líkamshluta og kynlíf
- Að sjónarhorn allra er jafn mikilvægt
- Mikilvægi kynheilbrigðis
- Algengum kynsjúkdómum og getnaðarvörnum
Leikniviðmið
- Íhuga og kanna eigið viðhorf til kynlífs
- Tjá skoðanir sínar
- Þekkja eigin líkama
- Eiga viðeigandi samskipti, sem einkennast af virðingu, við einstaklinga af báðum kynjum
Hæfnisviðmið
- Taka ígrundaðar ákvarðanir varðandi kynheilbrigði sitt
- Spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- Auka sjálfstæði sitt og trú á sjálfum sér
- Láta skoðanir sínar í ljós
- Vera meðvitaður um að kynferðisleg tjáning getur verið mismunandi
Nánari upplýsingar á námskrá.is