Sjálfbærni í víðu samhengi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á sjálfbærni og undirbúning fyrir fullorðinsárin. Farið verður yfir fjölbreytta sýn á aðstæður og umhverfi ungs fólks í dag og hvernig hugtakið sjálfbærni kemur fyrir í daglegu lífi. Áhersla er á að námið verði sjálfbært í þeirri merkingu að það eigi eftir að nýtast nemendum í framtíðinni og færa þá nær raunveruleika lífsins í gegnum fræðslu og umfjöllun/upplifun.
Þekkingarviðmið
- Hugtakinu sjálfbærni
- Hugtökum sem snerta umhverfismál og umhverfisvitund
- Að sérstaða manna meðal lífvera er margvísleg
- Fjölbreytileika lífs
- Mismunandi samskiptareglum
- Mikilvægi tjáningar og hlustunar
- Ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
Leikniviðmið
- Skoða eigin neysluvenjur og áhrif þeirra á eigin velferð og umhverfi
- Nálgast viðfangsefni á fjölbreyttan hátt
- Átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
- Taka þátt í umræðum
- Afla sér upplýsinga um lýðheilsu
- Nýta sér reynslu annarra til að takast á við sambærilegar aðstæður
Hæfnisviðmið
- Skilja þá hugsun sem felst í hugtakinu sjálfbærni
- Virða fjölbreytileika náttúru, umhverfis og fólks
- Þekkja styrkleika sína og nýta þá á jákvæðan og uppbyggilegan hátt
- Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
Nánari upplýsingar á námskrá.is