Læsi í víðu samhengi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á læsi í víðu samhengi og miðast vinnuferlið við að efla færni og sjálfsmynd nemenda til að takast á við lífið. Leitast er við að styrkja nemendur til að verða gagnrýnir, virkir þátttakendur í jafnréttis- og lýðræðissamfélagi. Verkefni og æfingar tengjast samskiptum, kynlífi, sjálfsmynd og framtíðarsýn.
Þekkingarviðmið
- Hugtakinu læsi í víðu samhengi
- Mikilvægi tjáningar og hlustunar
- Ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
- Mismunandi tjáskiptaleiðum
- Tilfinningum sínum og skilja orð og hugtök sem þeim tengjast
- Styrkleikum sínum
Leikniviðmið
- Nýta sér upplýsingar úr umhverfinu
- Tjá sig fyrir framan aðra
- Athöfnum daglegs lífs
- Taka þátt í umræðum
- Virða skoðanir annarra
Hæfnisviðmið
- Nýta styrkleika sína á jákvæðan og uppbyggilegan hátt
- Nýta sér læsi í víðu samhengi
- Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- Tjá eigin skoðanir
- Lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
Nánari upplýsingar á námskrá.is