kvikmyndaáfangi
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með ensku í gegnum kvikmyndir af ýmsu tagi. Áhersla verður á að nemendur horfi á kvikmyndir og vinni jafnt og þétt upp úr þeim ýmis verkefni. Nemendur verða hvattir til að velta fyrir sér hver boðskapurinn í viðeigandi kvikmynd er. Nemendur taka niður orð og þýða eftir hvert áhorf, vinna ýmis verkefni upp úr söguþræðinum og setja íslenskan texta við enskar myndir.
Þekkingarviðmið
- Söguþræði og innhaldi þeirrar kvikmyndar sem tekin er fyrir hverju sinni
- Að oft má tengja saman áhugamál og nám
- Sköpun í formi leik,- tón- og sönglistar
Leikniviðmið
- Að átta sig á atburðarrás kvikmynda
- Virða mismunandi kvikmyndasmekk
- Átta sig á mismunandi formi kvikmynda
- Taka þátt í umræðum
Hæfnisviðmið
- Taka þátt í umræðum um kvikmyndir
- Efla orðaforða sinn
- Átta sig á að margar kvikmyndir hafa ákveðinn boðskap
- Að spyrja spurninga og hlusta á aðra
- Að láta skoðanir sínar í ljós
- Átta sig á kostum þess að vera vel læs á enska tungu
Nánari upplýsingar á námskrá.is