lagatextar, tónlist
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með ensku í gegnum tónlist og dægurlagatexta. Áhersla verður á klassíska, popp- og rokktónlist í bland við það sem er vinsælast hverju sinni. Nemendur verða hvattir til að velta fyrir sér hvað textaskáldið er að segja í textunum. Nemendur bæta þannig jafnt og þétt við orðaforða og hugtakaskilning sinn.
Þekkingarviðmið
- Hvaða sögu textaskáldin eru að miðla hverju sinni
- Að oft má tengja saman áhugamál og nám
- Sköpun í formi ljóðagerðar og textasmíðar
Leikniviðmið
- Hlusta á og vinna með mismunandi texta og ljóð
- Virða tónlistarsmekk annarra
- Átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi tegund tónlistar
- Taka þátt í umræðum
Hæfnisviðmið
- Efla orðaforða sinn
- Átta sig á að margir textar hafa ákveðinn boðskap
- Spyrja spurninga og hlusta á það sem aðrir hafa áhuga á
- Láta skoðanir sínar í ljós
Nánari upplýsingar á námskrá.is